28. nóvember 2010 klukkan 22:53
Ég er orðin frekar þreytt á því að bloggar.is sé að crasha eða myndasíðurnar ekki að virka. Þar af leiðandi hef ég ákveðið að opna nýja heimasíðu. Slóðin er http://www.finkur.weebly.com
Síðan er ennþá í vinnslu og ekki allt efni komið inn á hana. Þessi síða mun ennþá vera opin en allt nýtt efni fer inn á hina síðuna.
http://finkur.weebly.com/
Ragnheišur Įsta
28. nóvember 2010 klukkan 20:59
Ungarnir stækka og stækka og eru komnir fjaðurbroddar. Þeir verða orðnir virkilega sætir svona um næstu helgi ;) Hérna eru myndir af 2 ungunum sem ég stal úr hreiðrinu. 
Ragnheišur Įsta
23. nóvember 2010 klukkan 21:07
Jæja allir 4 ungarnir eru komnir, sá seinasti kom í dag. Mér sýnist 3 vera gráir og sennilega eitthvað pied og einn virkar alveg hvítur eða nálægt því. Alltaf krúttlegt að heyra litlu tístin í þeim :) Ég er voða forvitin hvort það muni koma einhverntíman jafn spes ungi og Skuggi frá þeim.
Hérna er ungahrúgan, það sést í hausinn af 4, hinn er undir þeim.
Ragnheišur Įsta
21. nóvember 2010 klukkan 15:57
Fyrsti unginn af 4 er kominn! :D Litla krúttið.
Ragnheišur Įsta
11. nóvember 2010 klukkan 20:34
Eggin urðu 5 í gær. Það kom hinsvegar ekkert egg í dag og finnst mér því sennilegt að eggin verði ekki fleiri. Þá er bara að bíða. Fyrstu ungar gætu farið að koma í kringum 22. nóvember.

Ragnheišur Įsta
07. nóvember 2010 klukkan 13:26
Jæja Bíbí og Blaka eru komin með 2 egg og Blaka er farin að vera voða dugleg og sitja á :) Ah, það er svo gaman að hafa varp, þótt ég viti alveg hvaða litir koma frá þeim. Þannig það verða sennilega desember ungar hjá okkur.
Ragnheišur Įsta
01. nóvember 2010 klukkan 17:00
Ég ætla að leyfa Bíbí og Blaka að verpa á næstunni. Sérstakelga þar sem ég á fullt af hringjum fyrir árið 2010, best að nota þá haha :)
Ég ætla ekki að setja Bellu saman við Gosa eða Skugga fyrr en eftir áramót. Vil að hún venjist svæðinu fyrst og helst fitni aðeins heh.
Það er annars komið nafn á Vargs (Elmu) stelpuna. Við ætlum að kalla hana Írenu :)
Ragnheišur Įsta
26. október 2010 klukkan 18:38
Það bætist við í hópinn. Það er kominn önnur stelpa til okkar. Gullfalleg lightback split bc frá Elmu. Hún er stór og stæðileg og meira að segja stærri en hin þótt það séu margir mánuðir á milli þeirra haha :)
Við höfum ákveðið að kalla ljósa fuglinn Bellu en nafn kemur seinna á "unga 18". Þeim semur annars mjög vel eins og er :)


Ragnheišur Įsta
24. október 2010 klukkan 20:24
Jæja, ég fór í smá leiðangur og ætlaði að skoða finkumarkaðinn. Rakst ég á þessa fallegu dömu og gat ekki annað en keypt hana. Ég veit hinsvegar ekki hvaða lit hún ber. Kannski fawn isabel eða eitthvað. En hún er algjört beauty :)

Ragnheišur Įsta
13. október 2010 klukkan 18:03
Það er lítið að gerast þessa dagana. Höfum haft lítinn tíma fyrir búrið en eru búin að kaupa netið í það og allt sem þarf. Glerið reyndar ekki komið. Svo þarf bara tíma til að gera þetta.
Mig langar ekkert smá að fá nýtt varp en ég ætla ekki að gera neitt í því fyrr en búrið er komið upp. Annars mun sennilega fyrsta varpið verða Skuggi og lánsfugl frá Elmu. Ég er voða spennt yfir nýju varpi hjá Elmu, hún er með lightback/black cheek unga sem ég er að vona að séu stelpur þar sem mig langaði alltaf að fá eina lb stelpu og algjör plús ef hún er /bc :)
Ragnheišur Įsta